Saturday, October 27, 2007

jaherna

Eg aetladi ad koma med svaaadalega faerslu en thetta blogg er ekki buid ad virka i fleiri fleiri daga! Helt ad eg thyrfti kannski ad fa mer nytt blogg en svo virdist ekki vera! I gaer forum vid eitthvad adeins ut a lifid ekkert svadalegt neitt hittum einhverja vini estherar fra thvi hun var herna med systrum sinum i fyrra og hitt i fyrra. Their spila a gitar og soleidis. A eftir aetlum vid ad fa okkur pizzu thvi vid nennum ekki ad elda i kvold. I gaer kviknadi i matnum okkar og thad kom svaka eldur og okkur bra svo rosalega... Anna dolciotti kom inn og tekkadi hvort ekki allt vaeri i besta lagi. Greyid antonia og sabina voru i sjokki i gaer eftir ad konan a skrifstofunni sagdi theim ad thaer thyrftu ad flytja ut ur ibudinni theirra!!

en hey eg hef thetta ekki lengra nuna Esther og anneloes fara ad koma.. var ad klara tala vid mommu:):) takk mamma min gaman ad heyra i ther :**

ciao, kisses
saga

Thursday, October 18, 2007

Wednesday, October 17, 2007

Sursaetir dagar i rom!

Ætli það sé ekki kominn tími fyrir nýtt blogg. Esther er að borða hádegismat með Sabínu og Toni. Við ætluðum með þeim á Valentino sýninguna. En svo vorum við svolítið að tjútta í gær og ég hafði engan styrk til að fara á fætur klukkan 11 í morgunn. Býst við að Esther hafi ekki náð því heldur. Esther og Annelouse eru að plana eitthvað óvænt fyrir afmælið mitt og Esther er alltaf að gera mig spenntari og spenntari með því að segja þær séu að fara eitthvert líka þegar ég fer í ræktina!
Ég er að fara byrja í ræktinni á morgunn. Ég er rosa spennt fyrir því. Ætla bara byrja á því að fara á hlaupabretti og svoleiðis og svo worka massann. Saga massi eins og eitt sinn var sagt(Reyndar bara af Eyrúnu en allavegana...)
Ég kem “heim” 15 des. Ég veit ekki alveg hvort ég geti kallað það heim því ég bý nú líka í Róm. En ég kem á klakann 15 des, staðartíma 14:30. Bara svona fyrir þá sem vilja bíða spenntir og telja dagana eins og ein ung reykjavíkurmey sem ég þekki. Ég hlakka til að hitta alla en ég kvíði því að þurfa fara frá Esther og Annelouse í 3 heilar vikur úff.
Hárið á mér er orðið ansi lubbalegt! Ég er orðin útitekin og ég hef grennst. Ég hef ca. ákveðið jólagjafir og já já móðir góð þær eru ekki þungar. Dont worry be happy.
Útsölur hérna eru held ég í lok október. Þá ætla ég að kaupa jólagjafir og eitthvað á sjálfan mig nú líka.
Það er byrjað að kólna hér. Ekkert kjólaveður lengur, alltaf bara í hettupeysu og með trefilinn sem ég keypti í litlu búðinni við hliðina á húsinu okkur. Það eina sem ég finn verulegan mun(þannig mun að það veldur óþægindum) er að allt er lokað á sunnudögum nema kannski tabaccheria og náttúrulega veitingastaðir.
Það eru margir hér sem vilja koma heimsækja litla ísland og er ég búin að bjóðast til að fara með þeim á helstu staðina og sýna þeim litla fallega ísland lengst í Atlantshafinu.
Ég ætla halda uppá afmælið mitt næsta laugardag, sama dag og Hjördís  Því Rafa verður heima hjá sér á spáni, saragotha eða hvernig sem það er skrifað. Hann er frábær strákur, rosa sjálfstæður og kemur manni stanslaust á óvart. Hann er einmitt líka partur af academic árinu. Svolítið skondið að segja frá því en við fórum á fund út af því að við þ.e. Ég, Esther, Annelouse, Rafa, Robin, Etienne og Luisa og reyndar Angchelica líka en hún mætti ekki... allaveganna við fórum á smá fund út af þessu eða álíka. Þar sagði maðurinn okkur að við værum hreint og beint academic árið og við værum peningasjóðurinn þeirra. Eins og við værum að halda þessum skóla uppi. Við vorum svolítið hissa á þessum stóru orðum. Alla veganna fengum við að vita dagskránna eins og hún leggur sig fram í maí. Hún lítur bara ágætlega út. Nema það slæma er að í næstu viku megum við bara tala ítölsku. Það er svo erfitt að tala ítölsku. Mér finnst allt í lagi að eins og Rafa sem er lélegur í ensku tali við mig á ítölsku og ég svara honum bara á ensku. En eins og Rafa segir Tu sai male perche tu non provo. Sem þýðir þú ert slæm því þú reynir ekki. Sem er í sjálfum sér alveg satt. Ef ég legg hart að mér þá get ég alveg talað smá.

En jæja ég er hætt í bili! Ég er alltaf að reyna koma með einhverjar myndir hérna inná en það er alltaf eitthvað vesen! En jæja bless í bili kisses Saga ;)

Tuesday, October 9, 2007

liggja allir vegir til rom.. hmmm??

Ég Get sko sannarlega sagt að þetta sé þolraunin ein, því ég er Unique.. eins og perla í atlantshafinu.. kannski svolítið dramatísk lýsing en það er satt. Ég er íslensk og svo mikið öðruvísi. Ég reyni ekki að falla inn í hópinn það mikið því ég vil ekki vera eins og allir aðrir, ég hef aldrei viljað vera eins, frá því að hún móðir mín senti mig í skólann í fjólubláu rúllukragapeysunni eða frá því að ég fór í sitt hvorum skónum í skólann í grunnskóla þá hef ég aldrei verið eins og aðrir. Alltaf eitthvað sem ég hef haft öðruvísi. Núna kemur þetta ansi vel í ljós.
Ég er alls ekki að segja ég sé betri eða verri en aðrir bara allt, allt öðruvísi. Mér finnst nýfædd börn ekki vera ljót eins og Sabínu eða held ekki að strákar hafi bara einn hlut á heilanum. Ég get alls ekki einhæft svona um hluti. Sennilega vegna þess að ég er næst elst af þeim sem ég heng með eða kannski bara vegna þess að ég hef bara aðra sýn á lífið en þau hver veit....
Esther átti afmæli í dag! Hún varð 19. Ég verð 20 ára eftir 1 og hálfa viku jibbý jey!! Allir elska Esther segja hún sé eins og mamma og sé svo jákvæð og góð. Ég dýrka hana en það sem er með hana hún getur ekki ákveðið neitt bara fyrir sjálfan sig. Hún þarf alltaf að fylgja öðrum. Ég held að það hafi verið 2 sinnum erfiðara fyrir hana en það var fyrir mig að koma hingað, hún er svo háð. Ef ég ætti að líkja mér og esteri saman þá myndi ég líkja mér við tunglið og hana sólina. Hún þarf birtu og líf í kringum sig. Læti, líf og asa. Ég þarf smá myrkur af og til ég get ekki lifað í þessari birtu og gleði að eilífu. Ég þarf mína góðu daga og mína slæmu daga. Ég get bara einfaldlega ekki lifað í eintómri sælu eins og hún lítur út fyrir að hafa en ég efa það sé þannig í raun og veru. Hún er stelpan sem grætur beiskum tárum þegar enginn er að horfa(get ég ímyndað mér).
Ég senti nokkrum manneskjum póstkort í dag. Ég senti bara 3 manneskjum kort svo ekki verða of æst/ur um að það sért þú lesandi góður, þessir 3 voru innan fjölskyldunnar. Setti airpost á svo það yrði fljótara að komast til eyjunnar minnar heittelskuðu  Ég sakna svo sannarlega íslands þótt að Róm sé mjög framandi borg. Ég sakna trjáanna og vindsins og skrýtna veðursins sem við höfum. Ég sakna litla smábæjarlífsins í mosó. Ég sakna íslenskunnar minnar. Ég held mig langi rosa að taka íslensku eða mannfræði í háskólanum á næsta ári. Hver veit. Ég veit ekki alveg hve vel ítalskan mín gengur.
Á morgunn eða hinn ætla ég að finna þetta Gym og tékka hvað mánaðar kort kostar!. Ég er sú eina sem hef eitthvað á beinunum hérna. Allar hinar stelpurnar eru bara skinn og bein. Engar línur og þá auðvitað líka engin... Svo ég er feita stelpan í hópnum sem er svolítið ósanngjarnt þar sem ég er í rauninni ekki það feit en hey því meira sem þú hefur því meira er að elska eða það segir a.m. vinkona mín hún Eyrún  Ég er samt alls ekki að safna spiki. Þið megið ekki misskilja það! Svo ef þetta er ekki of dýr líkamsrækt þá ætla ég að byrja eins fljótt og ég get. Þetta er sennilega engin Hreyfing eða Laugar en þetta ætti að duga. Kem fit og flott heim ;) Vona ég. Er orðin svolítið útitekin en ég set nú samt engar myndir af mér því ég er ekki mikið fyrir myndir af mér.
Svo þeir sem mér líkar best við eru Esther, Annelous og Mike. Esther minnti mig allt í einu á þig Harpa(vona þú sért að lesa þetta!) Það kom ákveðið hljóð frá henni þegar við vorum að horfa á greys anatomy og mér fannst allt í einu eins og þú sætir hliðiná mér. Mig langaði að knúsa hana og kyssa en þá leit ég á hana og fattaði að hún er ekki þú svo ég lét það vera. Við leygðum Borat í dag og Green street hoolicans. Horfðum á þessar myndir fyrir og eftir kvöldmat í dag. Borat er snilld, Estheri finnst hún sktýtin en aftur á móti þvær esther ekki sinn eigin þvott né skiptir um sængurver á rúminu sínu svo við erum svolítið eins og Eldur og vatn. Hún er ekki eins rugluð og flippuð eins og ég. Hún er róleg og yfirveguð og skipulögð og þrifin. Humm fyrir þá sem vita hvernig ég er geta rétt ýmindað sér hvað ég er að reyna mitt besta svo hún fari ekki á taugum að búa með mér. Það hafið jú flest öll komið inn í herbergið mitt í akurholtinu.
Það er líka eit sem ég skil ekki við stelpurnar sem ég heng með aðalega Antoniu og Sabinu(þær eru roomates, hervbergisfélagar) þær segja að vinkonur sínar séu slut og vierd og að það sé e-h að sumum. Ef þú ert að segja þetta um vinkonu þína þá getur hún varla verið vinkona þín. Ég elska allar mínar vinkonur út af lífinu. Allir hafa sína galla og kosti. En þessar stelpur sem ég kalla vinkonur mínar eru þær hugrökkustu og sterkustu stelpur sem ég þekki. Ég myndi aldrei...
Jæja áður en fólk fer að halda ég sé að skrifa þetta eftir svaðalegtlegt kvöld út á lífinu þá ætla ég að hætta. Vildi bara deila hugsunum mínum með ykkur. Það er erfitt að læra um alla þessa nýju siði og menningu. Ég hef aldrei verið lengur en 3 vikur í ákveðnu landi og nú á ég að búa hér í 8 mánuði. Það er bara meira en að segja það get ég sagt ykkur. En esther er farin að sofa og ég ætti sennilega að gera það sama, áður en allar þessar hugsanir mínar fara mynda sér eigið líf og breytast í lifandi verur (þær taka sannarlega mikið pláss á minniskubbnum þ.e usb lyklinum sem þær fara á núna)

Svo kossar og knús frá litlu stelpunni sem er að reyna plumma sig í Róm.
Þ.e. mér Sögu!

keypti mer kort i raektina i gaer byrja naesta manudag :D:D

Friday, October 5, 2007

naestum 2 vikur lidmar af dvolinni!

Hæ Saga hérna skrifa enn einu sinni frá Rómarborg í bullandi stuði!!!
Vikurnar fljúga frá manni. Hitti 2 íslenskar stelpur í gær á hip hop RNB kvöldi á dýrasta stað rómar.. en við vorum á gestalista svo ekkert mál. Önnur þeirra var einmitt í Varmárskóla í 10 bekk þegar ég var að byrja í 7 held ég. Hitti hana nokkrum sinnum í barnaafmælum hjá Svölu. Svona er ísland víst lítið land!. Þær voru búnar að lifa hérna í 3 ár eða voru að fara búa hérna í 3 ár. Það er mikið finnst mér og ég sem hélt að 8 mánuðir væru slatti. Ótrúlegt hvað ég hef nú samt upplifað mikið.
Af tánni minni er það að frétta að henni er að batna og þegar henni er batnað vonandi í byrjun næstu viku get ég farið og fundið líkamsrækt. Svolítið erfitt að vera bara labba ekkert að worka vöðvana hver gauralegt sem það hljómar þá vil ég nú fara lyfta einhverjum kílóum .. áður en ég get ekki lengur lyft sjálfri mér uppá steininn til að setjast. Reyni að setja fleiri myndir inná á næstunni. Nokkrar fleiri að skólanum og krökkunum. Ein stelpa Katerine sem er frá austurríki er búin með sinn tíma á morgunn! Hún er að fara heim á laugardaginn. Rosa fín stelpa! Ég er farin að skilja ponsu ítölsku en ekki það mikið. Mjög erfitt að tala samt.
Ester á afmæli á sunnudaginn svo ég keypti handa henni afmælisgjöf í gær. Rosa flottan bol! Gaf henni hann bara í gær því við erum alltaf saman og hún sá hann í litlu flottu búðinni hérna hliðina á húsinu okkar. Ég keypti mér geggjað töff trefil  Við elduðum hamborgara í dag og horfðum á alfie og borðuðum flögur. Á morgunn föstudag förum við kannski til Mikes að horfa á mynd og svo er laundry day á morgunn eða laugardaginn. Fötin orðin svolítið skítug eftir 2 vikur. Ég er komin með oggu ponsu lítinn lit í framan og á hendurnar. Það er alltaf e-h í kringum 20 gráður þessa dagana og er ég bara alveg að fíla það.
Hér eru hinsvegar engir fallegir strákar. Ester fær alltaf rosa athygli fyrir að hafa ljóst hár. 3-4 strákar sem reyndu við hana í gær og einn gerðist svo ágengur að klípa í rassinn á henni. Meiri perrarnir hérna og alls ekki fallegir. Hehe. Vinur hans Rafa er búin að vera hérna í 2 daga. Algjör andstæða af Rafa samt svolítið fyndið. Ég og Esther vorum rosa fínar í gær á þessu dæmi því það var dress to impress en svo var enginn þarna eins fínn. En Mike sagði að við hefðum verið mjög elegant og litið vel út svo það er gott. Tók engar myndir af mér og Esther en mike tók mynd af mér og Rafa. Greyið Rafa myndast alltaf eins og hann sé að fara myrða einhvern. Mike á bara eftir að vera hérna í mánuð svo er drengurinn bara horfinn aftur til L.A. í arkítektar vinnuna sína. Sabina og Antonia verða hér fram að jólum. Ég, Rafa, annelouse og Esther verðum hérna þangað til í maí. Norska stelpan höndlaði þetta ekki og fór aftur til Noregs.
Málfræðin er alltaf að verða erfiðari og erfiðari. En jæja veit ekki alveg hvað meira ég get sagt frá nema ég verð 20 ára eftir 2 vikur akkúrat!! Jibbý kóla jey


Ykkar elsku besta Saga!

Kveð að sinni.. þó fólkið hér sé mér mun minni!!

Tuesday, October 2, 2007

Eg tharf ad fara til laeknis!!tain i maski

Fréttir af mér: Helgin er búin og ég fékk svakalega heimþrá  e

Fréttir af mér: Helgin er búin og ég fékk svakalega heimþrá  en mér líður betur.. ég þarf bara bæta sjálfstraustið mitt um 80% :p en það kemur með tímanum bíst ég við. Núna veit ég einnig um líkamsrækt og e-mailaði á listaskóla hérna í róm hvort þau væru að kenna klassískan söng... á eftir að tékka hvort ég hafi fengið svar til baka hvort þau geri það eður ey.

Á miðvikudaginn erum við í “hópnum” Ég, Esther, Annelouse, Mike ,Rafa, Sabina, Antonia og Luisa að fara á opnun á nýjum hip hop, R´N´B stað. Við þurfum að fara í fín föt svo ég get farið í vintage skónna mína úr spútnik og útskriftarkjólinn minn og sett froðu í hárið(krulla það) og verið ofsalega sæt og fín þá þannig ég hef eitthvað til að hlakka til. Esther verður svo 19 á sunnudaginn svo við ætlum að spyrja gömlu konuna sem á íbúðina hvort við getum fengið nokkra í heimsókn og kannski í mat. Ég bíst við að það sé gott að hafa alltaf eitthvað til að hlakka til.

Vikurnar líða jafn hratt og einn dagur á íslandi. Ég er líka búin að ákveða tónleika sem ég fer á með luisu eftir eða með Rossini. Ég er ekki viss hvort það sé með honum sjálfum eða hans tónlist eða er Rossini kannski sinfóníustjórnandi... æi ég man þetta ekki það er kominn soldill tími síðan ég var í tónlistarsögu svo ef einhver úr söngskólanum er að lesa þetta þá er bannað að skamma mig fyrir þennan skort af vitneskju um tónlistarmenn einnig bið ég alla að afsaka íslenskuna mína. Hún fer versnandi með hverjum degi pér che ég er alltaf að tala við aðra á ensku eða í tímum á ítölsku.

Norska stelpan sem var ekki alveg að höndla þetta um daginn og fór að gráta í tíma því hún skilur ekkert, er mjög sennilega á leiðinni heim en hún skráði sig líka í akademíu árið eins og ég. Ég er a.m. stolt af mér að halda þetta út því eins og flestir vita er ég ekki opnasta manneskja í heimi og ja ég hélt ég væri góð í tungumálum en tjahh ég er farin að hafa mínar efasemdir um það.

Ég vona öllum líki myndirnar sem ég setti inn og vil ég sérstaklega þakka Bróðir mínum sem hefur verið einstaklega hjálpsamur þessa fyrstu viku mína hér og auðvitað gamla parinu í akurholtinu 270 mos  þau eru sterkustu klettar íslands! Alltaf hægt að styðjast við þau. Ég sakna líka þorra míns. Veit ekki hvort ég var búin að skrifa um það áður en jólafríið er frá 15.12-06.01. Ég var að skoða flug heim þá og eru þau ennþá til. Þarf að bóka þau á næstu dögum bíst ég við. Frænka og Frændi esterar eru að fara koma í heimsókn eftir 2 vikur og foreldrar annelouse eftir 1 og hálfa. Besti vinur Mikes kemur eftir 3 eða 4 vikur og hveeer kemur að heimsækja mig ha? Hver bíður sig fram. Veit að Maríu langar rosalega og jú stelpunum Eyrúnu og Katrínu en ég er nú ekki alveg að sjá þær fyrir mér að koma hingað þótt það myndi gleðja mig meira en allt í heiminum.. veit að flóki var næstum því í næsta flugi á leiðinni hingað Ég líka get ekki beeeðið eftir nóvember. Ég hlakka svo til að fá þetta kríli í heiminn. Það fær sko alla mína ást!! Og jú foreldrarnir fá hana nú líka ;) og amman líka.

Svo Flóki minn jú ætli það sé ekki bara smá rokk í Róm. Ég verð bara vera svart hvíta hetjan og komast í gegnum erfiðu partana í þessu og þeir verða eflaust mun erfiðari en þessi sunnudagur! Um leið og ég fer að byrja í ræktinni og að syngja þá kemur hamingjan í stóru flóði ætla ég að vona!


Ég óska öllum heima á klakanum alls hins besta. Lifið í friði.

Ykkar Saga (sem er að massa þetta í tætlur eins og henni einni er lagið)