Friday, January 25, 2008

sakna thin thorri!


Hæhæ hér kemur staða mála: Ekki mikil breyting í rómarborg, veðrið virðist hinsvegar ætla breytast til hins betra sem er alltaf jákvætt, í dag er heiðskýrt og sól en auðvita er hann kári alltaf af og til að narta í kinnarnar á fólkinu. Skólinn er bara eins og skólinn er. Reyndar eru 2 nýjar stelpur í bekknum Sarah og Johanne(Jóhanna) Sara er frá finnlandi og Jóhanna frá París(frönsk með ítalskan kæró sem er alls ekkert óalgengt hérna) Sara er 22 ára og bara rosa næs. Esther og Anneloes eru að detta í sundur smám saman, a.m. ekki gott ástand á þeim. Vonum að það lagist.
Þvoði næstum öll mín föt í dag fyrir 800 kr. íslenskar með smá þurrkun líka, svo ilma eins og þvottaefni núna. Ótrúlegt hvað þessi sápa er sterk. Sniglar og fleiri skriðdýr ásamt örfáum flugum byrjuð að láta sjá sig hér og þar. Rosa stórir þessir rómversku sniglar, ekkert grín þar á ferð og allsberir í þokkabót.
Ætla kaupa mér kort í líkamsræktina í dag. Byrja í smá meðferð á þessum blessaða líkama mínum, einnig hressa sálina í leiðinni(komin með létt leið á þessum hversdagsleika hér) Senti líka nokkrum söngkennurum mail og fékk 2 til baka. Önnur segir mér að hafa samband eftir 2 vikur því hún sé að skipta um húsnæði núna, kurteis kona og bara fínt bréf. Hin hinsvegar er oooofur áhugasöm, segist vera gefa einkatíma og vilji endilega heyra frá mér og að ítalskan mín sé frábær og bara heyrumst fljótt segir hún og hún vill hafa langt samtal við mig í síma. Þar sem ég hef voða litla trú á ítölskunni minni er ekki alveg tilbúin til þess að geta haldið uppi alvarlegu samtali um söngtíma sérstaklega ef það kemur í ljós að hún er með einhvern massívan óskiljanlegan hreim og talar á hraða ljóssins!! Svo skræfan ég er ennþá að íhuga þessa stöðu, langar rosa mikið að taka tíma ekkert endilega hjá henni bara söngtíma, endilega kommentið með ráð um þessa “flóknu” stöðu sem ég er í. Veit í rauninni að það er bara 1-2 í stöðunni en hvað finnst ykkur??
Annars er pæling að fara í stærsta mollið í Evrópu, sem er hér í róm og þar er H&M( eina h&m sem er í róm ) á morgunn! Þar sem útsölur hafa minnkað og fara sennilega brátt að enda, janúar er jú senn á enda. Þannig að ef við ætlum að kaupa á “gjafaverði” er það þessi helgi sem um er að ræða.
Svo er það auðvitað stórviðburðurinn í febrúar að faðir minn kemur í heimsókn  hlakka rosa til þess. Líka byrjum við á undirbúningstímum fyrir próf nr.2(við sem erum ekki einu sinni búin að fá einkunnina útúr nr.1)Eftir prófið ,sem verður í mars, byrjum við í tísku,kvikmynda og menningar og sögu tímum, sem ég held að sé með því skemmtilegasta í þessum Rómarpakka.

En jæja nóg í bili, vona allir hafi það gott og líði sem best!! Er með hugann og hjartað hjá ykkur öllum!! Kossar og knús frá litla rómarfaranum  ciao

Monday, January 14, 2008

hey hò jibbyjei

Jæja þá er vika síðan ég kom hingað aftur eftir jólafrí. Ótrúlegt hvað margt getur gerst á einni viku :D Mér tókst að týna veskinu mínu og finna það aftur. Anneloes fékk að vita að hollensk stelpa verður herbergisfélaginn hennar eftir þessari sem er núna. Og þessi hollenska verður 3 mán. Hún er ekkert of spennt að fá hana :p. Við erum bara búin að vera í upprifjun síðustu viku og erum frá korter yfir 2 til hálf 6.
Ég ætla kannski að fara byrja í ræktinni aftur og líka söng. Er með massíva hálsbólgu núna sem er ekki gaman. Pabbi kemur í heimsókn yfir helgi í febrúar jeeey!! Anna Dolciotti er bara ánægð að fá okkur aftur. Útsölur eru hér á fullu núna. Ætlum að skella okkur á morgunn sennilega. Kaupa kjóla, skó, veski og hver veit hvað fleira. Rafa kom svo í síðustu viku eftir að hafa verið mánuð á spáni. Sagðist hafa saknað okkar. Sandro, Etienne og Robin eru að fara flytja inn saman 1 feb. Svo þá getum við hangið hjá þeim öll saman.
Veðrið er búið að vera upp og niður. Nú er glampandi sól en síðustu daga er búið að vera rigning, rigning, rigning . Svo erum við byrjuð að plana alls konar ferðir út fyrir Róm um leið og veðrið batnar, ég hlakka til. Fara á ströndina, í almenningsgarð í pikk nikk, kannski einhvert með bát og eitthvað sniðugt. ´
Ég er strax byrjuð að taka myndir á ný svo þið getið farið að hlakka til myndasýningu á síðunni Á bara eftir að setja þær í tölvuna.
Skólinn er troðfullur af nýjum nemendum. 5 nýjar stelpur frá hollandi (meira eða minna) Fólk frá spáni og auðvitað bandaríkjunum. Fólkið 40-50+ heldur sig alltaf saman í stórum hópum, sennilega til að skilja eitthvað. Við hjálpuðum einni eldri konu um daginn að taka caps lock af símanum sínum og sjá missed calls. Þessi kynslóð getur verið ansi skondin á tímum. Anneloes er búin að vera hjá okkur ansi oft og borða með okkur, Anna er líka svo opin með það svo það er fínt, sérstaklega þar sem Anneloes er að díla við “kærasta” vandamálin sín þá þarf hún stuðning.
Er farin að velta þeirri hugmynd með háskólann á næsta ári til og frá og hef komist að þeirri niðurstöðu að það verður erfitt að koma aftur í heim alvörunnar og kuldans eftir að hafa eitt ári hér.

Ciao ciao ykkar Saga!!

Sunday, January 6, 2008

Komin aftur ut!

Jaeja kaera fòlk. Tha er eg maett a svaedid. Kom i gaer eftir vel heppnad ferdalag, en aaansi threytt. Kom i GRENJANDI rigngingu, ekki beint thad skemmtilegasta, en kom samt sem adur i 9°C sem er mun heitara en er a klakanum eis og stendur. Borgadi fjarans 50 evrur,sem er ekki retta verdid, en eg nennti ekki ad bida uti i rigningunni eftir odrum leigubil og bilstjorinn var allt i lagi saetur og var med reghlif svooo.. Svo i gaerkv0ldi horfdi eg bara a Raudhettu(hoodwinked) og sofnadi eftir thad um svonna 9 leitid ,vaknadi reindar um 12 leitid og eitthva aftur en vaknadi svo endanlega klukkan half 1 og for fram ur um eitt leitid sem er auvitad 12 leitid heima. Skrapp ut i bud rett adan og keypti sma mat thar sem eg bordadi bara tunfisksdos i kvoldmatinn i gaer. Esther kemur ekki fyrr en i kvold og Anneloes eitthvad adeins fyrr. Allt lokad herna i kringum mig og eg veit ekki einu sinni hvort utsolur eru byrjadar svo eg verd bara roleg. Skolinn byrjar a morgunn og er svoldid spenno ad sja allt nyja lidid sem er maett serstaklega thar sem meira en helmingurinn haetti um jolin! En jaeja thetta er bara sma stafesting fyrir thvi ad eg muni blogga a dvol minni her a italiu.. eg lofa!!

ciao, faid meira naest