Jæja þá er vika síðan ég kom hingað aftur eftir jólafrí. Ótrúlegt hvað margt getur gerst á einni viku :D Mér tókst að týna veskinu mínu og finna það aftur. Anneloes fékk að vita að hollensk stelpa verður herbergisfélaginn hennar eftir þessari sem er núna. Og þessi hollenska verður 3 mán. Hún er ekkert of spennt að fá hana :p. Við erum bara búin að vera í upprifjun síðustu viku og erum frá korter yfir 2 til hálf 6.
Ég ætla kannski að fara byrja í ræktinni aftur og líka söng. Er með massíva hálsbólgu núna sem er ekki gaman. Pabbi kemur í heimsókn yfir helgi í febrúar jeeey!! Anna Dolciotti er bara ánægð að fá okkur aftur. Útsölur eru hér á fullu núna. Ætlum að skella okkur á morgunn sennilega. Kaupa kjóla, skó, veski og hver veit hvað fleira. Rafa kom svo í síðustu viku eftir að hafa verið mánuð á spáni. Sagðist hafa saknað okkar. Sandro, Etienne og Robin eru að fara flytja inn saman 1 feb. Svo þá getum við hangið hjá þeim öll saman.
Veðrið er búið að vera upp og niður. Nú er glampandi sól en síðustu daga er búið að vera rigning, rigning, rigning . Svo erum við byrjuð að plana alls konar ferðir út fyrir Róm um leið og veðrið batnar, ég hlakka til. Fara á ströndina, í almenningsgarð í pikk nikk, kannski einhvert með bát og eitthvað sniðugt. ´
Ég er strax byrjuð að taka myndir á ný svo þið getið farið að hlakka til myndasýningu á síðunni Á bara eftir að setja þær í tölvuna.
Skólinn er troðfullur af nýjum nemendum. 5 nýjar stelpur frá hollandi (meira eða minna) Fólk frá spáni og auðvitað bandaríkjunum. Fólkið 40-50+ heldur sig alltaf saman í stórum hópum, sennilega til að skilja eitthvað. Við hjálpuðum einni eldri konu um daginn að taka caps lock af símanum sínum og sjá missed calls. Þessi kynslóð getur verið ansi skondin á tímum. Anneloes er búin að vera hjá okkur ansi oft og borða með okkur, Anna er líka svo opin með það svo það er fínt, sérstaklega þar sem Anneloes er að díla við “kærasta” vandamálin sín þá þarf hún stuðning.
Er farin að velta þeirri hugmynd með háskólann á næsta ári til og frá og hef komist að þeirri niðurstöðu að það verður erfitt að koma aftur í heim alvörunnar og kuldans eftir að hafa eitt ári hér.
Ciao ciao ykkar Saga!!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)


2 comments:
ÚÚÚÚ.......
Á að taka ítalíu með trompi, ekki bara Róm, fara til Napolí þar sem allt er í rusli - það er víst æðisleg borg þrátt fyrir glæpagengin þar og fleiri borga. Ég er alveg viss um að ENGINN vildi vera í þínum ævintýralegu sporum. Skyldu vinir og vandamenn þekkja hana þegar hún stígur á íslenska grund aftur?
Jæja stuttin, gaman að sjá að allt er farið af stað aftur. Vona að þetta sé hin eina og sanna árlega hálsbólga sem láti ekki sjá sig aftur - bara eilíft sólskin fram á sumar.
Kveðja
Mamma
Kveðja úr 3 stiga frosti á íslandi.
Flóki
Post a Comment