Wednesday, December 12, 2007

Gleeedilegan fyrsta jolasvein til byggda!!

Hæj hæj öll sömul, Sá á mbl.is í dag að aðalfréttin væri að dóttir tveggja sveitabúa mun lenda á keflavíkurvelli laugardaginn þann 15.des klukkan 14:30 að staðartíma.
Af mér er allt gott að frétta annars. Jólin eru farin að láta vita af sér hér í róm! Við fengum jólatré 1.des og konan sem sér um að skreyta það er alltaf að bæta einhverju á það. Hún bjó til litla jólaborg með litlum brúðum voða sætt allt saman samt svolítið fyndið hve mikinn tíma konan hefur til að dunda sér. Ég er næstum búin að pakka öllu niður og ætla kaupa vikt á eftir. Svo er það prófið á föstudaginn. Á morgunn er ég svo að fara tala um Ísland og segja hve frábært land það er. Þetta blogg er þó aðalega tileinkað móður minni því henni langaði í eitt stykki jólablogg og þið vitið jú hvað mæður hafa sterk áhrif. Rafa fór heim í dag svo við fórum út með honum í gær og drukkum einn drikk og hann er sennilega kominn heim núna. Hann tók ekki deli prófið heldur eitthvað svipað því. Sagði að það væri rosa auðvelt! Ég trúi því mátulega, en hann fékk 9/10 rétt

En hey ég held þetta sé nóg bara fínt! Ætla reyna hafa nokkrar myndir með ef ég get!


en sjàumst hress eftir 2-3 daga!!
ciao, kossar og Knus!!