Saturday, September 29, 2007

Check out my Slide Show!

Fotbolti og rigning.. me dont like the rain!

Hæhæ Ég er enn á lífi og ósködduð! Nú getur fólkið heima sem er að skoða þetta hætt að svitna og naga á sér neglurnar. Ég ætla líka koma með nokkrar myndir svo þið sjáið betur hvernig er hérna og vini mína og umhverfið.
Nú er einmitt vika liðin af þessari rómardvöl og var það fyrst í gær sem ég varð rosa lítil í mér og langaði heim. Ég sakna svo rosa margra. Á miðvikudaginn fór ég ásamt nokkrum vinum mínum á fótboltaleik :Lazio og höfuðborgarinnar í sardiníu sem ég man ekki alveg nafnið á. Auðvita vann Lazio 3-1. Við fengum miðana aðeins ódýrari, þótt þeir voru nú ekki dýrir fyrir, því við komum smá seint ,sem skipti samt ekki miklu máli því það var ekkert að gerast. Í gær ætluðum við svo að hitta vin Esterar(herbergisfélagi minn) en hann beilaði vegna rigningar. Okkur fannst það nú kjánalegt því smá rigning drepur nú engan en seinna fengum við að kynnast því að þetta var enginn smá rigning. Við vorum samt sem betur fer með regnhlífar. Samt urðum við rosa blautar. Við fúrum með Annelouse og svo hringdi Rafa í mig og hann talar ekki það góða ensku svo það var rosa erfitt að skilja hvar hann var og svona en á endanum fann hann okkur og þá var hann gegnsósa. Hans hugsun var sú að ef þú ert þegar orðinn smá blautur þá skifta aðeins fleiri dropar engu máli svo hann var ekki með neina regnhlíf. Við sátumst inná kaffihús eins og er eiginlega bara venjan hér, mér finnast samt cappocinoarnir hér ekki eins góðir og latte-arnir heima. Ekkert jafnast á við kaffið á café milano óneiJ Svo fór annelouse heim og þá fórum við ester og Rafa að sjá trevi fountain. Hann er rosalega flottur þegar það er svona rökkur en alls ekki dimmt. Ég og Rafa köstuðum pening í hann og óskuðum okkur. Svo er bara spurning hvort óskin mín rætist.
Í gær fengum við svo að koma með nokkra vini heim sem urðu svo 5 vinir svo við vorum 7 að borða pasta og drekka hvítvín. Fórum svo að spila eftir matinn eitthvað spil sem ég hafði alveg heyrt um á íslensku en á ensku kannaðist ég ekkert við það. Síðan fórum við og kíktum aðeins á næturlífið á piazza di fiori(blómatorginu). En gærkvöldið var rosalega fínt. Í dag ætlum við svo að hitta hópinn fyrir utan skólann og gera eitthvað saman. Það er ennþá leiðinlegt veður og alls ekki hlítt. Frekar kalt meira að segja. Mér finnst það megi nú aðeins hitna. Það er alltaf gert smá grín af mér því ég segi að mér finnist smá köld gola allt í lagi og líka út af því að mér fannst heitt í súpermarkaðnum í gær. Íslenska stelpan er náttúrulega vön kuldanum. Ég fann mér líka disk í gær með einhverjum tenór sem er samt naxos diskur en það er rosalega afslappandi að hlusta á hann.
Ég hef ekki enn rekist á einn einasta íslending. Bíst við að þeir halda sig allir á strikinu í köben eða í óveðrinu heima. Ég er þegar komin með nokkrar hugmyndir af jólagjöfum handa nokkrum svo þið getið hlakkað til heimkomu minnar sem ég svo sem held að þið gerið nú þegar. Það sem mér finnst samt svo ótrúlegt er hvað ísland er hrikalega lítið land. Það áttar sig enginn á því fyrr en hann fer til borgar eins og rómar eða bara út fyrir ísland. Þessi þjóð okkar er líka svo hrikalega þröngsýn og yfirborðskennd, það er svakaleg. Auðvitað er ég alls ekki að alhæfa það er bara svo furðulegt að kynnast fólki frá t.d. Hollandi þar sem allt er miklu stærra og fólk fleira. Íslendingar halda sig svo rosalega með íslendingum. Ég elska ísland en það mætti vera stærra eða byggja brú eða hafa ódýrari ferðir til annara landa.

Ástarkveðjur frá borg elskandanna
Ykkar Alíslenski smáborgari Saga

Tuesday, September 25, 2007

Eg er a lifi

Ok Ok hvað er að frétta af mér hmmmmm....
Svona liggja menn í því þessa dagana :p Á sunnudaginn fór ég í íbúðina mína og er ég í herbergi með Esther (frá hollandi) hún er 88 módel og mjög fín, hún kann smá í ítölsku en skráði sig nú samt í beginner class. Anyway þá erum við í íbúð með Önnu dolciotti sem er sennilega 75 ára og minni en ég .. algjör rúsínu dúllí púlli sæta kona. Hún vill öllum vel og er bara næs. Eldhúsið er frekar lítið og baðið er ekkert til að hrópa húrra fyrir en allt saman er þetta kósí og þægilegt.
Ég mætti svo í skólann í dag klukka hálf 9 sem var ansi snemmt fannst okkur esteri ,hefðum alveg viljað sofa lengur, var að spá í að snooza en þá væri ég ekki skemmtó herbergisfélagi oooniiii. Við borðuðum og fórum í bus 46 sem stoppar næstum fyrir utan skóann okkar. Svo biðum við í röð og þeir sem þekkja mig vita að eitt af því leiðinlegasta sem ég geri er að bíða í röð, well sigrún og hrafnhildur ættu að vita það frá því að bíða í röðinni með mér í kvennó í matsalnum :p. En jæja aftur í kaldann en þó bráðvolgan raunveruleikann: Komumst loks inná skrifstofuna og létum registera okkur, þ.e. fengum skólabók, atburðaskrá, “stundatöflu” sem þýðir þeir 2 tímar sem ég verð í næstu 2 vikurnar frá hálf 1 til ca. 4 og allir tímar á ítölsku ahh no english. Kennararnir mínir eru Alexsandro í málfræði og Massimo í Samtölum. Þetta er ansi langur dagur þar sem hléið á milli tíma er bara korter og við förum svo hratt yfir allt saman. Eftir skólann í dag var ég bara með svolítinn hausverk verð ég bara að segja og svolítið dizzy. En já við erum 14 í bekknum. Ég –íslensk, Esther-Lousia-Eten(eða álíka) og Robinàöll frá hollandi, Rafael-spáni, Rosa falleg stelpa frá þýskalandi sem ég á erfitt að trúa því en hey það eru bara bull fordómar, sem eftir þessa 9 mánuði, verða ekki lengur til hjá mér. Svo er Mike sem er hálfur Japani og hálfur ítali en býr í L.a, Christine en samt sagt með K sem er frá einhverju landi sem ég man ekki alveg. Svo er það architectinn sem er frá veuazuela Maria, Kterst frá Noregi sem á greyið alltaf erfitt með nafnið sitt sem er samt víst mjög venjulegt í Noregi því þar er þetta týpískt norskt nafn en rosalega fín 23 ára stelpa! Gaurinn frá Grikklandi sem er fullorðinn og svolítið perralegur greyið í útliti. Japanska stelpan sem heitir bloom eða álíka, ég er hræðileg með nöfn , hún er samt rosalega fín eins og allir þarna og að lokum er stelpan með spangirnar sem Eyrún vinkona myndi aldrei fá sér og svarta naglalakkið. Hún er frá einhverjum spánarstað eða þar í kring. Þannig að þið sjáið að það eru 5 strákar og 9 stelpur. Fín stærð á bekk. Áðan var ég bara kveðja Foreldra mína því þau munu vera snúa aftur á klakann án mín. Ég sakna fá ekki að knúsa þorra minn loðna og sæta íslenska hundinn sem gerir sér glaðan dag og tekur á móti manni léttur í lundi þegar maður kemur heim úrvinda eða eitthvað illa fyrir komin. Og kossar til Eyrúnu minnar bestustu vinkonu sem er eflaust komin í lambakjötið með tennurnar á kaf í greyið smáfuglinn sem rétt kann að fljúga og nýkominn úr hreiðrinu, varnarlausa fuglinn... jæja nóg af einhverju sem enginn skilur ég ætla fara og setja handáburð á hendurnar og gleraugun í stað fyrir linsurnar.. hvar er samt Esther! Þarna kemur hún .. hún var líka kveðja foreldra sína og klippa á naflastrenginn í leiðinni.

En jæja ég er að fara að sofa..er rosalega þreytt eftir daginn í dag! Spurning að horfa á einn sex and the city þátt.. en jæja elskurnar mínar af eyju ástar og friðar, kulda og kláms... sykurs og sætra meyja og og köllum sem þeim fleygja við heyrumst vonandi fljótt aftur.
XOXO SAGA

er à netkaffi svo thid heyrid i mer vonandi naest af fartolvinni i hope ciao

Friday, September 21, 2007

jújú alveg fallegir kk í róm :p

Jæja ég er komin til rómar og var að tala við Önnu Dolciotti sem er konan sem leigir mér íbúðina. Hún kann ekki ensku, svo á “ítölsku” eða með nokkrum orðum tókst mér að koma henni í skilning að ég héti Saga ,væri í skóla leonardo da vinci og kæmi til hennar á sunnudaginn klukkan 4. Ég er að springa úr spenningi með hverjum ég verð í íbúð og svonna. Það var rosa gott veður í dag og ég og ma og pa fórum í tourist bus í dag og skoðuðum vatikanið.

En jæja er að horfa á will og grace og tala við eyrúnu:p blogga meira seinna.. endilega commenta!

Sunday, September 16, 2007

3 days! bye bye Iceland! bon journe Italia!!


jáhh þig heyrðuð rétt ég er farin eftir þrjá daga!! mér finnst það samt svo ótrúlegt eitthvað. Hélt kveðju-afmælispartýið mitt í gær... og allir komust nema ein.. hef aldrei séð allar vinkonur mínar saman komnar á einum stað! þær eru allar svo ólíkar og frábærar á sinn hátt! Djammaði stutt og er að reyna drífa mig að þrífa núna svo ég geti farið að pakka! Er að fara hitta bróðir minn í kvöld og svo er ég að fara halda lítið matarboð á mánudaginn og fer líka til tannsa.. ég er ekkert þunn bara dofin yfir þessu öllu saman

en jæja heyri næst í mér í róm :)