Hæhæ Ég er enn á lífi og ósködduð! Nú getur fólkið heima sem er að skoða þetta hætt að svitna og naga á sér neglurnar. Ég ætla líka koma með nokkrar myndir svo þið sjáið betur hvernig er hérna og vini mína og umhverfið.
Nú er einmitt vika liðin af þessari rómardvöl og var það fyrst í gær sem ég varð rosa lítil í mér og langaði heim. Ég sakna svo rosa margra. Á miðvikudaginn fór ég ásamt nokkrum vinum mínum á fótboltaleik :Lazio og höfuðborgarinnar í sardiníu sem ég man ekki alveg nafnið á. Auðvita vann Lazio 3-1. Við fengum miðana aðeins ódýrari, þótt þeir voru nú ekki dýrir fyrir, því við komum smá seint ,sem skipti samt ekki miklu máli því það var ekkert að gerast. Í gær ætluðum við svo að hitta vin Esterar(herbergisfélagi minn) en hann beilaði vegna rigningar. Okkur fannst það nú kjánalegt því smá rigning drepur nú engan en seinna fengum við að kynnast því að þetta var enginn smá rigning. Við vorum samt sem betur fer með regnhlífar. Samt urðum við rosa blautar. Við fúrum með Annelouse og svo hringdi Rafa í mig og hann talar ekki það góða ensku svo það var rosa erfitt að skilja hvar hann var og svona en á endanum fann hann okkur og þá var hann gegnsósa. Hans hugsun var sú að ef þú ert þegar orðinn smá blautur þá skifta aðeins fleiri dropar engu máli svo hann var ekki með neina regnhlíf. Við sátumst inná kaffihús eins og er eiginlega bara venjan hér, mér finnast samt cappocinoarnir hér ekki eins góðir og latte-arnir heima. Ekkert jafnast á við kaffið á café milano óneiJ Svo fór annelouse heim og þá fórum við ester og Rafa að sjá trevi fountain. Hann er rosalega flottur þegar það er svona rökkur en alls ekki dimmt. Ég og Rafa köstuðum pening í hann og óskuðum okkur. Svo er bara spurning hvort óskin mín rætist.
Í gær fengum við svo að koma með nokkra vini heim sem urðu svo 5 vinir svo við vorum 7 að borða pasta og drekka hvítvín. Fórum svo að spila eftir matinn eitthvað spil sem ég hafði alveg heyrt um á íslensku en á ensku kannaðist ég ekkert við það. Síðan fórum við og kíktum aðeins á næturlífið á piazza di fiori(blómatorginu). En gærkvöldið var rosalega fínt. Í dag ætlum við svo að hitta hópinn fyrir utan skólann og gera eitthvað saman. Það er ennþá leiðinlegt veður og alls ekki hlítt. Frekar kalt meira að segja. Mér finnst það megi nú aðeins hitna. Það er alltaf gert smá grín af mér því ég segi að mér finnist smá köld gola allt í lagi og líka út af því að mér fannst heitt í súpermarkaðnum í gær. Íslenska stelpan er náttúrulega vön kuldanum. Ég fann mér líka disk í gær með einhverjum tenór sem er samt naxos diskur en það er rosalega afslappandi að hlusta á hann.
Ég hef ekki enn rekist á einn einasta íslending. Bíst við að þeir halda sig allir á strikinu í köben eða í óveðrinu heima. Ég er þegar komin með nokkrar hugmyndir af jólagjöfum handa nokkrum svo þið getið hlakkað til heimkomu minnar sem ég svo sem held að þið gerið nú þegar. Það sem mér finnst samt svo ótrúlegt er hvað ísland er hrikalega lítið land. Það áttar sig enginn á því fyrr en hann fer til borgar eins og rómar eða bara út fyrir ísland. Þessi þjóð okkar er líka svo hrikalega þröngsýn og yfirborðskennd, það er svakaleg. Auðvitað er ég alls ekki að alhæfa það er bara svo furðulegt að kynnast fólki frá t.d. Hollandi þar sem allt er miklu stærra og fólk fleira. Íslendingar halda sig svo rosalega með íslendingum. Ég elska ísland en það mætti vera stærra eða byggja brú eða hafa ódýrari ferðir til annara landa.
Ástarkveðjur frá borg elskandanna
Ykkar Alíslenski smáborgari Saga
Subscribe to:
Post Comments (Atom)


5 comments:
ohh váá það er svo gaman hjá þér!:D gaman að sjá að þú ert að njóta lífsins þarna í róm. en ég ætla ekki að hafa þetta langt núna því eg er nú að spjalla við þig núna á msn!! og má engan tíma missa!;)
Allt í bullandi gangi hjá þér, sé ég. Mæli með að þú haldir áfram að dæla myndum inn á síðuna. Það er svo gaman að fá smá innsýn í þinn heim. En hvað er með þessar myndir af þér og Rava? Mér finnst hann standa allt of nálægt þér. Segðu honum að þú eigir rosasterkan bróður á Íslandi og að það sé honum fyrir bestu að stilla sig.
Brósi
PS. Næs að heyra í þér í símanum.
Vá, nóg að gera - það er sko skemmtilegt hjá þér.
Eru þið Ester að prófa 1001 pastarétt? Við pabbi þinn eigum þá von á fríi frá eldamennsku þegar þú kemur heim ;-)
Hvað með ítölskuna - er eitthvað af henni farið að síast inn?
Hafðu það gott mín kæra
Mamma sín
hmmm mikid ad gera segidi ekki endilega alltaf jakvaett .. eg er svoldid einmanna thott eg se alltaf umkringd folki.. eg sakna allra heima og er a einhverju heimthraartimabili.. sem eg kemst eflaust yfir.. en Rafa er rosalega finnn strakur og no worrys brodir hann a kaerustu :) med itolskuna eg vona hun fari ad koma thvi timarnir eru ad verda erfidari og erfidari og meiri og meiri hausverkur ad fylgjast med i tima.. serstaklega i malfraedi timum lov ju all!
Hæ hæ. Við rétt að njósna um það sem er að gerast.
Hafðu það sem best og burt með heimþráartímabilið. Láttu þér líða eins og skýjunum á myndinni sem þú tókst :)
Kærar kveðjur; Kristín, Haukur og litli Lexi
Post a Comment