Jæja, jæja þá er það bara svo að pabbsli minn er kominn og farinn. Hann var hér í heimsókn frá mið-sunnud. Við skemmtum okkur KONUNGLEGA saman. Borðuðum ítalskan mat, fórum að hlusta á jazz,óperu og tónleika, fórum í kirkjur,safn og hvað og hvað bara að nefna það. Greyið þurfti svo að fara úr sólinni hérna og góða veðrinu í brjálað klakaveður, sem að sögn móður minni elskulegu er ekki veður til að hrópa húrra fyrir. En get ég bara sagt það fyrir hans hönd að hann hafði mjög gaman af heimsókninni hingað og þeir sem vilja skreppa til Rómar endilega látið vita, er meira en opin fyrir heimsóknum, alltaf gaman að sjá kunnuleg andlit og hafa hitting.
Annað að frétta er ekkert mikið sosum. Valentínusardagur eða dagur heiðraður St. Valentínusi er á fimmtudaginn og af þessu tilefni er hjartalagaðar súkkulaðiöskjur og hvað og hvað “Rómantískt” nammi í búðargluggum Tabacchi-anna eða í súpermörkuðum. Ég hef aldrei verið mikið fyrir þennan dag, dagur klisjufólksins og minna marga einhleypa á það að þeir eru E.I.N.I.R, kjánalegur dagur. Þannig við á íslandi erum heppin að hafa hann ekki.
Hey já smáfréttir voru líka að berast síðasta fimmtudag, ég fékk 88,4% úr ítölskuprófinu mínu sem ég tók eftir jól :D:D og er ég bara rosa glöð með það, bjóst við að fá svona 8 í mesta lagi. Reyndar ekki svo ég sé að draga úr þessu en þá var prófið aaafskaplega létt, en ég meina þýðir bara að ég kunni a.m. eitthvað í ítölsku ha!! Er ekki bara búin að vera djamma og sofa hérna, geng í skóla og LÆRI ítölsku.
Umm er byrjuð í listasögu sem er alveg spennandi þegar hægt er að einbeita sér að efninu, 1 og hálfur tími af glærumyndum í myrkri kl.12.30 um morguninn, get bara sagt að stundum á hugurinn til að reika alla leiðina til íslands og er þar stundum síðasta hálftímann eða 45 mín þar sem hann heldur okkur alltaf(kennarinn) 15 mín lengur því hann nær ekki að klára glærupakkann á réttum tíma. Eins og þið sjáið þá fer þetta aðeins í mínar fínustu..
Keypti mér sumarkjól og bleikan bol í gær, öll á leiðinni í sumar/vor skapið. Er annars ekkert búin að vera spreða neitt svakalega á undarförnu.
Ekkert búin að sjá fleiri snígla. Samt búin að hafa augun opin, sérstaklega vegna svaka áhugasamra stelpu sem kommentaði í síðasta bloggi Hinsvegar varð ég vitni af einni moskítólegri flugu um daginn í sólinni og mundi allt í einu hver illa stungin ég var í september og hef því ekki planað að halda veislu í apríl þegar míflugurnar koma aftur.
En já já þetta er komið ágætt núna, þangað til næst þá vona að þessi íslenski kuldi sé þolanlegur og að þið hafið það bara kosy innandyra.
Kv. Saga
Monday, February 11, 2008
Subscribe to:
Posts (Atom)

