Sunday, March 9, 2008

heeey heey beibì

Hæhæ kæru vinir og fjölskylda eða jafnvel fjölskylduvinir
Þá eru 3 vikur í prófið og ég er ekki að fíla þennan kall sem er að undirbúa okkur. Eflaust fínasti kall en hann er sérfræðingur í að niðurlægja fólk fyrir framan allan bekkinn og láta fólk líða eins og það kunni virkilega EKKERT og sé rosa heimskt. Með öðrum orðum, mér finnst ekki gaman í undirbúningstímunum okkar!!
En hvað með það, þeir eru jú “bara” 1 sinni á dag næstu 3 vikurnar. En að meira spennandi fréttum, þá kemur haukur núna á miðvikudaginn og förum við út að borða og höfum það kosý, það verður rosa gaman.
Allt er að fyllast af páskaeggjum og páskadóti í búðunum. Allir að undirbúa sig fyrir páskana. Í skólanum eru sennilega 2 frídagar, föstudagurrinn langi og annar í páskum en það er ekki víst. Ég bíð spennt eftir að páskaeggið mitt komi! Veit að það er búið að vera ferðast í viku núna og hlítur bara vera koma á áfangastað. Ásamt heimabankalyklinum mínum sem þýðir að ég get millifært einhvern pening inná kortið mitt, 7,9,13 að það komi sem fyrst!
Ég kem til íslands í heimsókn 5 apríl og verð til 13! Planið er kannski að fara á skíði ef það er snjór,afmæli og hitta fólk! Svo þegar ég kem til baka verður góða veðrið að koma hér og þá er líka bara 1 og hálfur mánuður eftir. Mamma ætlar líka kannski að kíkja í lok apríl. Allt gaman og gott.
Helgin var bara róleg, var bara heima að dunda mér og horfa á 6 seríuna af sex and the city. Veðrið er byrjað að batna, búið að rigna svolítið að undanförnu en í dag lét sólin aðeins sjá sig og kíkti ég aðeins út á svalir. Á morgun ætlar Anna svo að þrífa herbergið okkar svo ég er búin að vera með litlar hreingerningar, ganga frá dóti, hún segir nefnilega stundum að herbergið okkar sé svolítið “casino” sem þýðir allt út um allt og er ég hrædd um að Esther gæti ekki verið snyrtilegri manneskja svo dýrið sem veldur þessu kemur víst frá íslandi. En jæja ég veit ekki hvað meira hægt er að segja svo baejo,arrivaderci

Monday, March 3, 2008

Heimurinn batnandi fer!

Já hvað get ég sagt, þær fréttir sem ég hef að færa af mér eru allt nema góðar, sumir myndu segja sorglegar, aðrir grátlega, enn aðrir afskaplega leiðinlegar. Dvöl mín í landi pervertana og ólívanna (svo létt sé tekið til orða) eftir jól hefur ey svo verið sú besta sem ég hef upplifað, heimþrá, ennþá meiri heimþrá og aleigu tapað svo dæmi séu tekin um það.
Ég hef aldrei verið mikið fyrir kuldann á íslandi en ég get í hreinskilni sagt að ég sakna grýlukertanna og snjósins heima. Vina ásamt fjölskyldu. Það er alls ekki alltaf dans á rósum að hlaupa um stórborg án umsjónar eða “skuldbindinga”
Ég hef á undan förnum dögum velt fyrir mér hvort dvöl minni hér sé í raun og veru lokið, hvort að landar íssins og kulda væru betur settir á að ég snúi aftur með heimsþekkingu(aðalega ítölsku og smá hollensku) og deili með þeim hvernig það er í raun og veru að vera sandkorn í eyðimörk, strá á akri, dropi í stöðuvatnið Svarið er nei kæru landar, hér mun ég ljúka dvöl minni í enda maí!. Ég hefði sko sannarlega fussað og sveiað ef einhver fyrir 3 árum svo mikið hefði reynt að telja mér trú um að ég myndi vera svo “huguð” ,ef ég get sjálf sagt frá, að fara ein mín liðs til Ítalíu og hvað þá til rómar 2007 og tekið akademískt ár þar.
Ég veit þetta blogg mitt lítur meira út eins og minningargrein í Moggann en blogg 20 ára stelpu í Róm en stundum er betra að vera dramatískur og segja eins og er í staðinn fyrir að pakka vandamálunum í kassa og segja að allt sé frábært og ég sé þvílíkt búin að uppgötva hina einu sönnu Sögu.
Oki ég bloggaði síðast þegar pabbi var hér. Núna eru a.m. 2 vikur liðnar. Ég er semsagt búin að vera í 4 vikna “listanámskeiði” með skólanum, ég geri gæsalappir þar sem hvorugur kennarinn lærði listasögu heldur gaf glærur og kynningu uppúr bók. Seinni tvær vikurnar eru búnar að vera ansi fræðandi.
Síðasta föstudagskvöld tókst mér hinsvegar að týna veskinu mínu með öllu mínu í og að þökkum mínum yndislegu foreldrum er ég að komast á fætur aftur núna. Ég er komin með nýjan(rosa dúllulegan en samt rosalega töffaralegan , a.m. meðan hann er lokaður) síma og gef ég öllum sem um það biðja, númerið mitt.
Bróðir minn varð 8(37) ára á föstudaginn og vil ég því hér með tileinka honum þessa málsgrein og óska honum til lukku með þann áfanga. Hann á semsagt afmæli á hlaupaári og eins og eflaust flestir vita er þetta ár hlaupaár og að ég veit ansi sérstsagt ár fyrir alla þá sem það vilja. Bróðir minn mun koma í heimsókn, eftir eina og hálfa viku  verður það ýktað stuð!
Svo að enn stærri risa fréttum, planið er að ég í eigin persónu muni láta sjá mig á klakanum eftir mánuð, þ.e. fyrstu dagana í apríl og hangi með fólkinu í nokkra daga, fari í sturtu og svona þægindi!
Svo er einnig í þessum töluðu orðum páskaeggið mitt á leið til landsins! Ætli þessar elskur í Akurholtinu muni ekki eftir einkadóttur sinni og sendi henni páskaegg frá nóa siríusi! Þar sem ég aldrei hef verið fjölskyldu frá á þessum tíma ársins.
Er ekki alltaf best að fá vondar fréttir fyrst og svo þær allra bestu í lokinn, mér finnst það a.m. Þannig fer enginn leiður út af síðunni minni :D
En jæja sætu íslendingarnir mínir, ég kveð ykkur héðan, þar sem 4 vikur eru í próf, enn styttra í heimsókn bróður míns og aðeins lengra í mig!!
Hey já líka eitt svolítið kjánalegt, meiningin með þessu akademik ári mínu var einnig að huganlega fá þetta metið inní hí, en svo virðist vera að við getum ekki tekið DALI prófið, erfiðasta prófið(því við verðum ekki tilbúin) svo við fáum skírteini en bara ekki SKÍRTEINIÐ sem segir að við getum kennt ítölsku og er alþjóðlegt fyrir að háskólaeiningar! Og eru ekki allir hressir með það. Leonardo sagði takið DALI og fáið lélega einkunn eða takið Dili(Dils) og fáið einkunn sem þið eruð sátt með eða ánægð með.

En jæja þetta er bara svolítið undarlegt en ég er farin, ásamt þessari heimsku hálsbólgu sem ég er búin að hafa í viku og veldur því að ég sofi ekki alveg nóg, BLESS BLESS!!