Tuesday, October 9, 2007

liggja allir vegir til rom.. hmmm??

Ég Get sko sannarlega sagt að þetta sé þolraunin ein, því ég er Unique.. eins og perla í atlantshafinu.. kannski svolítið dramatísk lýsing en það er satt. Ég er íslensk og svo mikið öðruvísi. Ég reyni ekki að falla inn í hópinn það mikið því ég vil ekki vera eins og allir aðrir, ég hef aldrei viljað vera eins, frá því að hún móðir mín senti mig í skólann í fjólubláu rúllukragapeysunni eða frá því að ég fór í sitt hvorum skónum í skólann í grunnskóla þá hef ég aldrei verið eins og aðrir. Alltaf eitthvað sem ég hef haft öðruvísi. Núna kemur þetta ansi vel í ljós.
Ég er alls ekki að segja ég sé betri eða verri en aðrir bara allt, allt öðruvísi. Mér finnst nýfædd börn ekki vera ljót eins og Sabínu eða held ekki að strákar hafi bara einn hlut á heilanum. Ég get alls ekki einhæft svona um hluti. Sennilega vegna þess að ég er næst elst af þeim sem ég heng með eða kannski bara vegna þess að ég hef bara aðra sýn á lífið en þau hver veit....
Esther átti afmæli í dag! Hún varð 19. Ég verð 20 ára eftir 1 og hálfa viku jibbý jey!! Allir elska Esther segja hún sé eins og mamma og sé svo jákvæð og góð. Ég dýrka hana en það sem er með hana hún getur ekki ákveðið neitt bara fyrir sjálfan sig. Hún þarf alltaf að fylgja öðrum. Ég held að það hafi verið 2 sinnum erfiðara fyrir hana en það var fyrir mig að koma hingað, hún er svo háð. Ef ég ætti að líkja mér og esteri saman þá myndi ég líkja mér við tunglið og hana sólina. Hún þarf birtu og líf í kringum sig. Læti, líf og asa. Ég þarf smá myrkur af og til ég get ekki lifað í þessari birtu og gleði að eilífu. Ég þarf mína góðu daga og mína slæmu daga. Ég get bara einfaldlega ekki lifað í eintómri sælu eins og hún lítur út fyrir að hafa en ég efa það sé þannig í raun og veru. Hún er stelpan sem grætur beiskum tárum þegar enginn er að horfa(get ég ímyndað mér).
Ég senti nokkrum manneskjum póstkort í dag. Ég senti bara 3 manneskjum kort svo ekki verða of æst/ur um að það sért þú lesandi góður, þessir 3 voru innan fjölskyldunnar. Setti airpost á svo það yrði fljótara að komast til eyjunnar minnar heittelskuðu  Ég sakna svo sannarlega íslands þótt að Róm sé mjög framandi borg. Ég sakna trjáanna og vindsins og skrýtna veðursins sem við höfum. Ég sakna litla smábæjarlífsins í mosó. Ég sakna íslenskunnar minnar. Ég held mig langi rosa að taka íslensku eða mannfræði í háskólanum á næsta ári. Hver veit. Ég veit ekki alveg hve vel ítalskan mín gengur.
Á morgunn eða hinn ætla ég að finna þetta Gym og tékka hvað mánaðar kort kostar!. Ég er sú eina sem hef eitthvað á beinunum hérna. Allar hinar stelpurnar eru bara skinn og bein. Engar línur og þá auðvitað líka engin... Svo ég er feita stelpan í hópnum sem er svolítið ósanngjarnt þar sem ég er í rauninni ekki það feit en hey því meira sem þú hefur því meira er að elska eða það segir a.m. vinkona mín hún Eyrún  Ég er samt alls ekki að safna spiki. Þið megið ekki misskilja það! Svo ef þetta er ekki of dýr líkamsrækt þá ætla ég að byrja eins fljótt og ég get. Þetta er sennilega engin Hreyfing eða Laugar en þetta ætti að duga. Kem fit og flott heim ;) Vona ég. Er orðin svolítið útitekin en ég set nú samt engar myndir af mér því ég er ekki mikið fyrir myndir af mér.
Svo þeir sem mér líkar best við eru Esther, Annelous og Mike. Esther minnti mig allt í einu á þig Harpa(vona þú sért að lesa þetta!) Það kom ákveðið hljóð frá henni þegar við vorum að horfa á greys anatomy og mér fannst allt í einu eins og þú sætir hliðiná mér. Mig langaði að knúsa hana og kyssa en þá leit ég á hana og fattaði að hún er ekki þú svo ég lét það vera. Við leygðum Borat í dag og Green street hoolicans. Horfðum á þessar myndir fyrir og eftir kvöldmat í dag. Borat er snilld, Estheri finnst hún sktýtin en aftur á móti þvær esther ekki sinn eigin þvott né skiptir um sængurver á rúminu sínu svo við erum svolítið eins og Eldur og vatn. Hún er ekki eins rugluð og flippuð eins og ég. Hún er róleg og yfirveguð og skipulögð og þrifin. Humm fyrir þá sem vita hvernig ég er geta rétt ýmindað sér hvað ég er að reyna mitt besta svo hún fari ekki á taugum að búa með mér. Það hafið jú flest öll komið inn í herbergið mitt í akurholtinu.
Það er líka eit sem ég skil ekki við stelpurnar sem ég heng með aðalega Antoniu og Sabinu(þær eru roomates, hervbergisfélagar) þær segja að vinkonur sínar séu slut og vierd og að það sé e-h að sumum. Ef þú ert að segja þetta um vinkonu þína þá getur hún varla verið vinkona þín. Ég elska allar mínar vinkonur út af lífinu. Allir hafa sína galla og kosti. En þessar stelpur sem ég kalla vinkonur mínar eru þær hugrökkustu og sterkustu stelpur sem ég þekki. Ég myndi aldrei...
Jæja áður en fólk fer að halda ég sé að skrifa þetta eftir svaðalegtlegt kvöld út á lífinu þá ætla ég að hætta. Vildi bara deila hugsunum mínum með ykkur. Það er erfitt að læra um alla þessa nýju siði og menningu. Ég hef aldrei verið lengur en 3 vikur í ákveðnu landi og nú á ég að búa hér í 8 mánuði. Það er bara meira en að segja það get ég sagt ykkur. En esther er farin að sofa og ég ætti sennilega að gera það sama, áður en allar þessar hugsanir mínar fara mynda sér eigið líf og breytast í lifandi verur (þær taka sannarlega mikið pláss á minniskubbnum þ.e usb lyklinum sem þær fara á núna)

Svo kossar og knús frá litlu stelpunni sem er að reyna plumma sig í Róm.
Þ.e. mér Sögu!

keypti mer kort i raektina i gaer byrja naesta manudag :D:D

9 comments:

Anonymous said...

Við Eyrún (mágsa) liggjum uppi i sofa heima og njótum þess að lesa bloggið þitt; ég lasinn og hún með háan blóðþrýsting og má sig hvergi hræra. Góða skemmtun í ræktinni. Tökum góða bekkpressu þegar þú kemur heim um jólin :-)

Unknown said...

Býst við þér helmassaðri um jólin.

Anonymous said...

Saga MASSI! hehe:D við mælum vöðvana okkar saman um jólin;P spennandi að sjá hvor verður massaðri! gætum farið í keppni:) það kvetur okkur áfram í ræktinni;)

Anonymous said...

hehe roleg.. eg aetla byggja upp vodva en thetta er lika svo eg verdi ekki ein fitubolla thegar eg kem heim um jolin!
Tokum eina massiva bekkpressu um jolin haha sakna ykkar allra Rosa rosa :* kossar

Anonymous said...

hææ, sakna þín líka mús:(. :D. hvenær kemuru svo heim um jólin?. vona að ég nái að sjá þig áður en ég fer út!

Anonymous said...

Hæhæ sæta, það er mjög gaman að lesa bloggið þitt:) hehe það lýsir þér svo vel, þetta ert bara þú;) En það eru 3 dagar í afmælið:) á að gera eitthvað fyrir sjálfan sig? En hlakka til að sjá þig massaða í RUSL og tönuð í DRASL;) (setning úr Næturvaktinni)
Það er mikil trú á þér í ræktinni!
En kveðja frá KLAKANUM 0°C í dag

Knús frá Kötu:*

Anonymous said...

hvenær kemur nýtt blogg dúllan mín? mér er farið að leiðast:P hehe.. langar að heyra frá helginni og hvernig gengur í ræktinni og sonna;)

Anonymous said...

takk stelpur fyrri brjalud komment!! sakna ykkar svo thegar eg se svona innileg komment fra ykkur... eg er buin ad skrifa blogg tharf bara taka thad i skolann.. reyni ad gera thad a morgunn.. Kossar og knus.. lov ya!!

Anonymous said...

hae saga...
skemmtu ther vel..
en hvað.. kemuru heim um jólin?