Friday, October 5, 2007

naestum 2 vikur lidmar af dvolinni!

Hæ Saga hérna skrifa enn einu sinni frá Rómarborg í bullandi stuði!!!
Vikurnar fljúga frá manni. Hitti 2 íslenskar stelpur í gær á hip hop RNB kvöldi á dýrasta stað rómar.. en við vorum á gestalista svo ekkert mál. Önnur þeirra var einmitt í Varmárskóla í 10 bekk þegar ég var að byrja í 7 held ég. Hitti hana nokkrum sinnum í barnaafmælum hjá Svölu. Svona er ísland víst lítið land!. Þær voru búnar að lifa hérna í 3 ár eða voru að fara búa hérna í 3 ár. Það er mikið finnst mér og ég sem hélt að 8 mánuðir væru slatti. Ótrúlegt hvað ég hef nú samt upplifað mikið.
Af tánni minni er það að frétta að henni er að batna og þegar henni er batnað vonandi í byrjun næstu viku get ég farið og fundið líkamsrækt. Svolítið erfitt að vera bara labba ekkert að worka vöðvana hver gauralegt sem það hljómar þá vil ég nú fara lyfta einhverjum kílóum .. áður en ég get ekki lengur lyft sjálfri mér uppá steininn til að setjast. Reyni að setja fleiri myndir inná á næstunni. Nokkrar fleiri að skólanum og krökkunum. Ein stelpa Katerine sem er frá austurríki er búin með sinn tíma á morgunn! Hún er að fara heim á laugardaginn. Rosa fín stelpa! Ég er farin að skilja ponsu ítölsku en ekki það mikið. Mjög erfitt að tala samt.
Ester á afmæli á sunnudaginn svo ég keypti handa henni afmælisgjöf í gær. Rosa flottan bol! Gaf henni hann bara í gær því við erum alltaf saman og hún sá hann í litlu flottu búðinni hérna hliðina á húsinu okkar. Ég keypti mér geggjað töff trefil  Við elduðum hamborgara í dag og horfðum á alfie og borðuðum flögur. Á morgunn föstudag förum við kannski til Mikes að horfa á mynd og svo er laundry day á morgunn eða laugardaginn. Fötin orðin svolítið skítug eftir 2 vikur. Ég er komin með oggu ponsu lítinn lit í framan og á hendurnar. Það er alltaf e-h í kringum 20 gráður þessa dagana og er ég bara alveg að fíla það.
Hér eru hinsvegar engir fallegir strákar. Ester fær alltaf rosa athygli fyrir að hafa ljóst hár. 3-4 strákar sem reyndu við hana í gær og einn gerðist svo ágengur að klípa í rassinn á henni. Meiri perrarnir hérna og alls ekki fallegir. Hehe. Vinur hans Rafa er búin að vera hérna í 2 daga. Algjör andstæða af Rafa samt svolítið fyndið. Ég og Esther vorum rosa fínar í gær á þessu dæmi því það var dress to impress en svo var enginn þarna eins fínn. En Mike sagði að við hefðum verið mjög elegant og litið vel út svo það er gott. Tók engar myndir af mér og Esther en mike tók mynd af mér og Rafa. Greyið Rafa myndast alltaf eins og hann sé að fara myrða einhvern. Mike á bara eftir að vera hérna í mánuð svo er drengurinn bara horfinn aftur til L.A. í arkítektar vinnuna sína. Sabina og Antonia verða hér fram að jólum. Ég, Rafa, annelouse og Esther verðum hérna þangað til í maí. Norska stelpan höndlaði þetta ekki og fór aftur til Noregs.
Málfræðin er alltaf að verða erfiðari og erfiðari. En jæja veit ekki alveg hvað meira ég get sagt frá nema ég verð 20 ára eftir 2 vikur akkúrat!! Jibbý kóla jey


Ykkar elsku besta Saga!

Kveð að sinni.. þó fólkið hér sé mér mun minni!!

1 comment:

Anonymous said...

Independent [url=http://www.COOLINVOICES.COM]make an invoice[/url] software, inventory software and billing software to create professional invoices in minute while tracking your customers.