Ætli það sé ekki kominn tími fyrir nýtt blogg. Esther er að borða hádegismat með Sabínu og Toni. Við ætluðum með þeim á Valentino sýninguna. En svo vorum við svolítið að tjútta í gær og ég hafði engan styrk til að fara á fætur klukkan 11 í morgunn. Býst við að Esther hafi ekki náð því heldur. Esther og Annelouse eru að plana eitthvað óvænt fyrir afmælið mitt og Esther er alltaf að gera mig spenntari og spenntari með því að segja þær séu að fara eitthvert líka þegar ég fer í ræktina!
Ég er að fara byrja í ræktinni á morgunn. Ég er rosa spennt fyrir því. Ætla bara byrja á því að fara á hlaupabretti og svoleiðis og svo worka massann. Saga massi eins og eitt sinn var sagt(Reyndar bara af Eyrúnu en allavegana...)
Ég kem “heim” 15 des. Ég veit ekki alveg hvort ég geti kallað það heim því ég bý nú líka í Róm. En ég kem á klakann 15 des, staðartíma 14:30. Bara svona fyrir þá sem vilja bíða spenntir og telja dagana eins og ein ung reykjavíkurmey sem ég þekki. Ég hlakka til að hitta alla en ég kvíði því að þurfa fara frá Esther og Annelouse í 3 heilar vikur úff.
Hárið á mér er orðið ansi lubbalegt! Ég er orðin útitekin og ég hef grennst. Ég hef ca. ákveðið jólagjafir og já já móðir góð þær eru ekki þungar. Dont worry be happy.
Útsölur hérna eru held ég í lok október. Þá ætla ég að kaupa jólagjafir og eitthvað á sjálfan mig nú líka.
Það er byrjað að kólna hér. Ekkert kjólaveður lengur, alltaf bara í hettupeysu og með trefilinn sem ég keypti í litlu búðinni við hliðina á húsinu okkur. Það eina sem ég finn verulegan mun(þannig mun að það veldur óþægindum) er að allt er lokað á sunnudögum nema kannski tabaccheria og náttúrulega veitingastaðir.
Það eru margir hér sem vilja koma heimsækja litla ísland og er ég búin að bjóðast til að fara með þeim á helstu staðina og sýna þeim litla fallega ísland lengst í Atlantshafinu.
Ég ætla halda uppá afmælið mitt næsta laugardag, sama dag og Hjördís Því Rafa verður heima hjá sér á spáni, saragotha eða hvernig sem það er skrifað. Hann er frábær strákur, rosa sjálfstæður og kemur manni stanslaust á óvart. Hann er einmitt líka partur af academic árinu. Svolítið skondið að segja frá því en við fórum á fund út af því að við þ.e. Ég, Esther, Annelouse, Rafa, Robin, Etienne og Luisa og reyndar Angchelica líka en hún mætti ekki... allaveganna við fórum á smá fund út af þessu eða álíka. Þar sagði maðurinn okkur að við værum hreint og beint academic árið og við værum peningasjóðurinn þeirra. Eins og við værum að halda þessum skóla uppi. Við vorum svolítið hissa á þessum stóru orðum. Alla veganna fengum við að vita dagskránna eins og hún leggur sig fram í maí. Hún lítur bara ágætlega út. Nema það slæma er að í næstu viku megum við bara tala ítölsku. Það er svo erfitt að tala ítölsku. Mér finnst allt í lagi að eins og Rafa sem er lélegur í ensku tali við mig á ítölsku og ég svara honum bara á ensku. En eins og Rafa segir Tu sai male perche tu non provo. Sem þýðir þú ert slæm því þú reynir ekki. Sem er í sjálfum sér alveg satt. Ef ég legg hart að mér þá get ég alveg talað smá.
En jæja ég er hætt í bili! Ég er alltaf að reyna koma með einhverjar myndir hérna inná en það er alltaf eitthvað vesen! En jæja bless í bili kisses Saga ;)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)


9 comments:
Til hamingju með tvítugsafmælið þitt í dag!!!!! Vonandi áttu rosa góðan dag þarna í Róm...smáá öfund frá Klakanum!;)
Þín frænka,
Maren Heiða
Elsku Saga. Hjartanlegar hamingju óskir með afmælisdaginn. Gaman að lesa um hvað þér líkar vel í Róm. Ég var að koma heim frá London eftir 4 daga dvöl þar með skólasystrum úr Hjúkruanrskóla það ver rosa fjör , veðrið gott og allt það. Við í leikfélaginu erum að æfa barnaleikrti sem áætlað er að frumsýna n.k. sunnudag. Hlakka til að sjá ig í de.þín amma Maja
TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ SÆTA.. :)
hafðu það ógó gott úti þangað til þú kemur heim..
hlakka til að sjá þig.
kv.Hrefnus
ps: ég er bara nokkuð dugleg að skoða blogg :)
Til hamingju með afmælið! =D
Það hljómar eins og það sé ótrúlega skemmtilega hjá þér. Við sjáum þig fyrir okkur fara milli kaffihúsanna með ítölunum og sötra sterkt kaffi.
Svo geturðu verið alveg róleg - það er ekki heldur kjólaveður á Íslandi.
Hlökkum til að lesa meira!
-Sölvi og Gerður (og Eva - sem liggur hér í makindum sínum)
Elsku besta Saga mín, innilega til hamingju með stórafmælið. 20 ára, það er ekkert smá. Besti aldur í heimi (fyrir utan 32 ára).
Það er frábært að lesa bloggið þitt og finna hvað þú ert ánægð. Mikið er ég stolt af þér.
Hafðu það sem best á afmælisdaginn elskan mín. Ég og litla frænka/frændi í bumbunni sendum þér innilegar kveðjur. Góða skemmtun á laugardaginn sæta.
kveðja
Eyrún
Hæ Saga,
Innilega til hamingju með stórafmælið í dag! Það hefur verið virkilega gaman að lesa um stúdentalífið í Róm. Ég er ekki í vafi um að þú kemur al-talandi (eða singjandi) á ítölsku þegar þú kemur heim!
Kær kveðja,
Anne Grethe
takk takk aedislega fyrir hly comment og godar kvedjur.. dagurinn i dag var bara mjog finn! og atti eg godar verslunarstundir med vinkonum minum.. a laugardaginn verdur svo adaleitid!
Endurteknar afmælisóskir frá því í gær, systa rokk! Gaman að heyra hvað allt gengur vel. Og takk fyrir að halda nafni mínu á lofti þarna úti, þú veist hvað ég meina! Ég segi nú bara það sama og frænka þín fríð, það er ekki laust við að það gæti smáá öfundar frá Klakanum.
Skemmtu þér vel á laugardaginn.
Brósi
Elsku Saga okkar.Ætluðum nú ekki að láta okkar kveðjur liggja hér en þar sem við náum ekki í þig símleiðis viljum við senda þér innilegar hamingjuóskir og enn frekari von um að ná á þig símleiðis. Netið og síminn er greinilega ekki að virka og höfum við reynt ítrekað. Alexander er kominn með kenningu, að þér hafi hreinlega verið rænt, en við reynum að bæla það niður:) Farðu nú að svara símanum svo við getum hent á þig ALVÖRU "Til hamingju"
kveðja, H K og litla A
Post a Comment