Tuesday, November 6, 2007

meira vesenid alltaf hreint :) en lifid er svosem ekki skemmtilegt ef thad vaeri perfect!

Hæhæ . Þá er ég orðin 20 ára.
Vil þakka öllum sem hringdu eða sentu mér kveðju sína gegnum netið J Í gær fórum við nokkrir krakkar út að borða! Fórum á þennan litla stað rétt hjá skólanum. Ótrúlegt hvað maturinn þar er góður. Fékk mér pizzu með 4 osttegundum! Svo gott.. Fórum svo út að skemmta okkur. Flottir kokteilar og ódýr skot, góð tónlist og skemmtilegt fólk, það lýsir kvöldinu best. Í dag var ég svo bara heima því ég var ekki að nenna neinu, reyndi bara skilja þetta pronomi diretti sem er alls ekki auðvelt og horfði á Grey´s Anatomy(er orðin fíkill á þann þátt). Pronomi diretti er það nýjasta sem við erum að læra. Uhh það er byrjað að vera svolítið erfitt að hafa herbergisfélaga, sérstaklega sen er með þér í bekk og vinahóp. Ég er rosalega fegin að vera ein bara í ræktinni, smá tími fyrir sjálfan mig. Luisa fékk að gista hjá okkur síðustu nótt því dyrnar á heimilinu hennar eru lokaðar kl. hálf 11 eða álíka svo hún getur ekki verið lengi úti. Bömmer fyrir hana.
Útsölur fara byrja hér eftir viku eða svo býst ég við. Þá verður farið að versla jólagjafir. Ég tók nokkrar myndir í gær einnig sem koma seinna inná. Það er virkilega byrjað að kólna hér. Sem er nú ekki beint skemmtilegt. Ég hlakka ekki að koma heim í snjóinn í desember en vá hvað ég hlakka til að hitta alla!! Og ef þið viljið vita hvað margir dagar eru þangað til ég kem heim verðiði að spyrja Eyrúnu vinkonu, hún er með það á hreinuJ. Ég fór að versla á afmælisdaginn minn og keypti mér 4 flíkur í gær fékk ég svo svona kaþólskar perlur og eyrnalokka í gjöf. Rosa töff! Á morgunn þurfum við svo að borga aðra afborgunina. Svolítið óþæginlegt að fara með svo mikla peninga í skólann en ég vil frekar ljúka því en að þurfa fara með það í tvennu lagi. Í dag er svo akkurat mánuður síðan ég gisti í fyrsta sinn hérna í íbúðinni og ég kunni ekki stakt orð í ítölsku nema Ciao og grazie. Núna get ég a.m. myndað setningar eins og Io parlo piú italiano ma non troppo. Sem þýðir ég tala smá ítölsku en ekki mikla. Ég er mjög óörugg að tala hana. Ég meina íslenskan er ekkert eins og ítalskan svo give me a break þetta er difficile(erfitt) fyrir alíslending eins og mig. Oft sem mig langar bara að tala helling af íslensku og ég veit að Enginn getur skilið mig. Ég meina rafa og luisa tala stundum spænsku og Anneloes og Esther tala oft hollensku en ég tala ALLMTAF ensku eða stundum ítölsku!

Ok ég veit að þetta verður mitt lengsta blog hingað til en oki ef þið nennið að lesa það allt þá bara æðislegt! Mike er farinn til LA. Síðasta kvöldmáltítin var í gær 4.Nóv. Anneloes er búin að fá nýjan herbergisfélaga sem er frönsk, Ann sophie. Hún minnir mig svolítið á stelpuna í “slap her shes french” fyrir þá sem hafa séð hana og alls ekki í persónuleika bara útliti.
Sandro hitti einhvern gaur online veit ekki alveg hve alvarlegt það er. Robin og Giselle eru búin að vera saman núna í smá tíma. Mér hefur ekki líkað sérlega vel við hana síðan hún hélt að ég væri 17 ára(reyndi svo að afsaka það út af því að ég hef svo æðislega húð) hún er nú meiri strumpur en ég er og gæti alveg eins verið 15 ára..(ekki bitur en hún er 147 cm). Kærastan hans Rafa er búin að vera hér síðan á föstudaginn. Hún er mjög lík honum eitthvað. Nema hann er bara eins og hann er svolítill krakki í sér, ekki beint hægt að kalla hann Herramann, hann er bara Rafa.
Ég var að koma úr ræktinni og er að borða snakk. Im baad! En ég er þó að fara borða kjulla og pasta í matinn. Við erum að fara á barþjónakeppni á eftir eða klukkan hálf 10. Eftir 2 vikur fer liðið til spánar til zaragotha nema ég og Antonia verðum í Róm. 1 nóvember var frí í skólanum og við horfðum á Sex and The city. Anneloes og Luisa komu og við horfðum á þættina saman og eftir .það fórum við á kínverskan veitingarstað sem var mjög ódýr og góður. Í fyrra dag eða laugardaginn fór ég að hitta íslenska stelpu sem hefur búið hér í 3 ár. Við töluðum saman á íslensku sem var mjög góð tilbreyting. Hún sagði mér frá reynslu sinni og hvernig hún fylgist voða lítið með íslandi því í rauninni er þetta heimilið hennar, hún á ítalskan kærasta og allir vinir hennar tala ítölsku.

Það æðislegasta er að ég hef eignast litla frænku. Fallegasta stelpa á jarðríki og það er aðeins dæmt eftir myndum ég get varla ýmindað mér fegurð né hamingju hennar LIVE. Föstudagurinn 2.Nóv var eins og eitt stórt bleikt ský fyrir mig.. svífandi í fegurð heimsins og kemur aldrei niður því þarna er allt svo æðislegt. Það er ekki hægt að líða betur en bleiku skýi.( og það er ekki til að rökræða þetta er staðreyndJ) Nú og alltaf verður hún heitasta pían svo langt sé leitað, litla frænka mín Flókadóttir er klárlega fallegust og basta(endir).

Kveðja frá ykkar Sögu héðan frá Róm, ítalíu. Kossar og knús
Manco tutti!!(ég sakna ykkar allra)

og myndir... hver elskar ekki myndir!

1 comment:

Anonymous said...

úúú skemmtilegt blogg:D en já það eru eiginlega 38 dagar núna þangað til þu kemur!:D kl. er orðin yfir 12:P Skemmtilegar myndir hjá þér.. nokkrar af djamminu og svona;) Svo verðuru að leyfa mér að heyra ítölskuna svo ég geti bullað mína spænsku á móti;) eníveis, gaman að lesa þetta blogg og sjá að allt gengur vel:) bið að heylsa í bili:*
Og já til hamingju Eyrún og Flóki með litlu prinsessuna:)