Hæhæ kæru vinir og fjölskylda eða jafnvel fjölskylduvinir
Þá eru 3 vikur í prófið og ég er ekki að fíla þennan kall sem er að undirbúa okkur. Eflaust fínasti kall en hann er sérfræðingur í að niðurlægja fólk fyrir framan allan bekkinn og láta fólk líða eins og það kunni virkilega EKKERT og sé rosa heimskt. Með öðrum orðum, mér finnst ekki gaman í undirbúningstímunum okkar!!
En hvað með það, þeir eru jú “bara” 1 sinni á dag næstu 3 vikurnar. En að meira spennandi fréttum, þá kemur haukur núna á miðvikudaginn og förum við út að borða og höfum það kosý, það verður rosa gaman.
Allt er að fyllast af páskaeggjum og páskadóti í búðunum. Allir að undirbúa sig fyrir páskana. Í skólanum eru sennilega 2 frídagar, föstudagurrinn langi og annar í páskum en það er ekki víst. Ég bíð spennt eftir að páskaeggið mitt komi! Veit að það er búið að vera ferðast í viku núna og hlítur bara vera koma á áfangastað. Ásamt heimabankalyklinum mínum sem þýðir að ég get millifært einhvern pening inná kortið mitt, 7,9,13 að það komi sem fyrst!
Ég kem til íslands í heimsókn 5 apríl og verð til 13! Planið er kannski að fara á skíði ef það er snjór,afmæli og hitta fólk! Svo þegar ég kem til baka verður góða veðrið að koma hér og þá er líka bara 1 og hálfur mánuður eftir. Mamma ætlar líka kannski að kíkja í lok apríl. Allt gaman og gott.
Helgin var bara róleg, var bara heima að dunda mér og horfa á 6 seríuna af sex and the city. Veðrið er byrjað að batna, búið að rigna svolítið að undanförnu en í dag lét sólin aðeins sjá sig og kíkti ég aðeins út á svalir. Á morgun ætlar Anna svo að þrífa herbergið okkar svo ég er búin að vera með litlar hreingerningar, ganga frá dóti, hún segir nefnilega stundum að herbergið okkar sé svolítið “casino” sem þýðir allt út um allt og er ég hrædd um að Esther gæti ekki verið snyrtilegri manneskja svo dýrið sem veldur þessu kemur víst frá íslandi. En jæja ég veit ekki hvað meira hægt er að segja svo baejo,arrivaderci
Subscribe to:
Post Comments (Atom)


3 comments:
hlakka til að fá þig heim sæta mín!!!!!:)
Eru ekki allir í stuði?
Hó systa. Á ekkert að fara að bæta við færslu? Hvað er að gerast í þínu lífi þessa dagana? Dýrleif Kristín frænka þín heldur áfram að stækka og dafna. Stórkostlegt eintak. Þú verður hissa að sjá hvað hún hefur þroskast þegar þú kemur í heimsóknina.
Ástar- og saknaðarkveðjur, Flóki
Post a Comment