Friday, September 21, 2007

jújú alveg fallegir kk í róm :p

Jæja ég er komin til rómar og var að tala við Önnu Dolciotti sem er konan sem leigir mér íbúðina. Hún kann ekki ensku, svo á “ítölsku” eða með nokkrum orðum tókst mér að koma henni í skilning að ég héti Saga ,væri í skóla leonardo da vinci og kæmi til hennar á sunnudaginn klukkan 4. Ég er að springa úr spenningi með hverjum ég verð í íbúð og svonna. Það var rosa gott veður í dag og ég og ma og pa fórum í tourist bus í dag og skoðuðum vatikanið.

En jæja er að horfa á will og grace og tala við eyrúnu:p blogga meira seinna.. endilega commenta!

4 comments:

Anonymous said...

Sæl systa - þetta er súperspennandi allt saman. Hlakka sömuleiðis til að heyra með hverjum þú býrð. Held að það sé fertugur, frekar einrænn og óþrifinn Ítali (kk). Það kæmi mér svo ekki á óvart ef þú ættir eftir að brjótast inn fyrir skelina hjá honum með söng þínum ... eða hjá einhverfum syni hans og þannig fá eilífa aðdáun hans og virðingu.

Anonymous said...

úúú þetta er spennó! hlakka til að heyra hverjir verða svo heppnir að búa með þér:P en samt.. það má enginn vita!! maah:D
later;)

Anonymous said...

Hæ, hæ, Saga. Gaman að heyra frá þér , þú ert aldeilis dugleg að gera þig skiljanlega . vinandi færðu skemmtilega ssambylis menn eða konur. Hlakka til að heyra meira. kveðja amma Maja

Anonymous said...

hæ hæ saga mín loksins er ég komin á klakann og þú þá farin út ´það er komin smá ferðasaga á síðuna mína svo bætast við myndir fljótlega endilega fylgdust með og ég reyni að fylgjast með hvað gerist hjá þér þarna úti;)
skemmtu þér gífurlega og ég byð að heilsa öllum sætu strákunum;)