Hæhæ Ég vil byrja á því að óska pabba mínum til hamingju með afmælið! Karlinn er á há punkti lífs síns og er að njóta lífsins í kóngsins Køben. Bestu hamingjuóskir frá dóttur þinni í Róm.
Þessi helgi var bara rosa fín eins og flestar helgar. Ég hlakka samt ennþá meira til næstu helgar því að þá fer ég í IKEA! Jibbí kóla , ætla hugsanlega að kaupa eitthvað fyrir gamlársdag. Svo líður ekki á löngu þangað til að ég komi heim á kalda ísland! Hlakka rosa til að hitta allt liðið. Á miðvikudaginn verður akkurat mánuður þangað til ég lendi á klakanum hálf 3 ef allt gengur vel. Veit um nokkra sem hafa einhverjar tilfiningar um þessa heimkomu mína :)
Svo er líkamsræktar kortið mitt að klárast í þessari viku svo ég verð að vera dugleg að fara. Öllum til mikillar mæðu er ég ekki orðin eitthvert fitness tröll með uppblásna vöðva og dyravarðagöngulag. Svo verð ég að fara plana jólagjafir og hvað ég þarf að koma með heim. Hitinn hér er non freddisimo (ekki mjög kalt) en samt smá kuldi. Bíst við að taka húfurnar mínar og lopapeysuna heim um jólin. Vil þakka Katrínu fyrir Afmæliskortið sem kom þótt einhver seinkunn hafi nú verið hjá þeim hjá póstinum!
Mamma hennar Estherar og Stóra systir koma í þar næstu viku. Mamma Robins var hérna,mamma Carls og mamma Rafa, hafa allar komið hingað, Foreldrar Anneloes og vinkona Luisu.
Tek alla þá sem vilja heimsækja mig ,eftir jól, í skoðunarferð eins og Trevi brunninn, st.peters, get frætt þá um minnsta Ríkið í heiminum vatican ríkið. Farið í colosseu og skoðað fornu rústirnar. Allt er þetta mjög fræðandi og vonandi mjög freystandi fyrir hugsanlega ferðalanga sem geta hugsa sér að skreppa helgi til Rómar.
La vita é belle! Hér er svo smá ljóð sem ég hef verið að dunda mér við um róm:
Roma, ricordare sempre
Um rómarborg bæði stræti og torg ég ferðast langa leið
Ýmsir ferðalangar, heimabúar, jafnvel fangar, finna öryggi á þessum stað
Svo margt er að sjá, á mörkuðum enn fleira að fá, af Róm þú færð aldrei nóg.
Það er ey erfitt að verða ástfanginn af stórborginni sem nefnd var Róm
Bjöllur hljóma, götur af umferðinni óma
fólk í umferðinni er ei borginni til sóma
Destra sinistra sinistra e Destra, þú villist það er víst
Ítalskir karlmenn ágengir eru, þó þú það eigi kýst
Í róm finnurðu ástina, friðinn, hitann og borgarniðinn.
Ég kem hingað aftur eftir nokkur ár á því er ég sko klár
Guarda me Guarda me segir maður með hníf,
ég hugsa:Vá hér er þvílíkt götulíf...
(kannski framhald seinna)
Heyrumst seinna ,
:) af mér er semsagt allt gott að frétta þangað til næst hafið það ljómandi gott...
Ciao Saga, kossar og knús frá Róm!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)


2 comments:
Til lukku með gamla manninn, elsku systa. Ef ég þekki þig rétt ertu búin að vera á fullu í fótboltaóeirðum þannig að ég hef ekkert verið að kommenta á bloggið þitt fyrr en nú. Litla familían er spræk. Var að senda á þig myndir af bróðurdóttur þinni. Hún hlakkar til að fá föðursystur sína heim um jólin ... eins og pabbi hennar og mamma auðvitað
Vá!
Ljóð! Það fyrsta sem mér datt í hug var hvort stúlkan hefði fundið ástina í Róm! Ef svo er eru það greinilega ekki ágengir Ítalir.
Greinilega alltaf nóg að gera hjá þér.
Kveðja
Mamma sín
Post a Comment