Friday, January 25, 2008

sakna thin thorri!


Hæhæ hér kemur staða mála: Ekki mikil breyting í rómarborg, veðrið virðist hinsvegar ætla breytast til hins betra sem er alltaf jákvætt, í dag er heiðskýrt og sól en auðvita er hann kári alltaf af og til að narta í kinnarnar á fólkinu. Skólinn er bara eins og skólinn er. Reyndar eru 2 nýjar stelpur í bekknum Sarah og Johanne(Jóhanna) Sara er frá finnlandi og Jóhanna frá París(frönsk með ítalskan kæró sem er alls ekkert óalgengt hérna) Sara er 22 ára og bara rosa næs. Esther og Anneloes eru að detta í sundur smám saman, a.m. ekki gott ástand á þeim. Vonum að það lagist.
Þvoði næstum öll mín föt í dag fyrir 800 kr. íslenskar með smá þurrkun líka, svo ilma eins og þvottaefni núna. Ótrúlegt hvað þessi sápa er sterk. Sniglar og fleiri skriðdýr ásamt örfáum flugum byrjuð að láta sjá sig hér og þar. Rosa stórir þessir rómversku sniglar, ekkert grín þar á ferð og allsberir í þokkabót.
Ætla kaupa mér kort í líkamsræktina í dag. Byrja í smá meðferð á þessum blessaða líkama mínum, einnig hressa sálina í leiðinni(komin með létt leið á þessum hversdagsleika hér) Senti líka nokkrum söngkennurum mail og fékk 2 til baka. Önnur segir mér að hafa samband eftir 2 vikur því hún sé að skipta um húsnæði núna, kurteis kona og bara fínt bréf. Hin hinsvegar er oooofur áhugasöm, segist vera gefa einkatíma og vilji endilega heyra frá mér og að ítalskan mín sé frábær og bara heyrumst fljótt segir hún og hún vill hafa langt samtal við mig í síma. Þar sem ég hef voða litla trú á ítölskunni minni er ekki alveg tilbúin til þess að geta haldið uppi alvarlegu samtali um söngtíma sérstaklega ef það kemur í ljós að hún er með einhvern massívan óskiljanlegan hreim og talar á hraða ljóssins!! Svo skræfan ég er ennþá að íhuga þessa stöðu, langar rosa mikið að taka tíma ekkert endilega hjá henni bara söngtíma, endilega kommentið með ráð um þessa “flóknu” stöðu sem ég er í. Veit í rauninni að það er bara 1-2 í stöðunni en hvað finnst ykkur??
Annars er pæling að fara í stærsta mollið í Evrópu, sem er hér í róm og þar er H&M( eina h&m sem er í róm ) á morgunn! Þar sem útsölur hafa minnkað og fara sennilega brátt að enda, janúar er jú senn á enda. Þannig að ef við ætlum að kaupa á “gjafaverði” er það þessi helgi sem um er að ræða.
Svo er það auðvitað stórviðburðurinn í febrúar að faðir minn kemur í heimsókn  hlakka rosa til þess. Líka byrjum við á undirbúningstímum fyrir próf nr.2(við sem erum ekki einu sinni búin að fá einkunnina útúr nr.1)Eftir prófið ,sem verður í mars, byrjum við í tísku,kvikmynda og menningar og sögu tímum, sem ég held að sé með því skemmtilegasta í þessum Rómarpakka.

En jæja nóg í bili, vona allir hafi það gott og líði sem best!! Er með hugann og hjartað hjá ykkur öllum!! Kossar og knús frá litla rómarfaranum  ciao

7 comments:

Anonymous said...

Hæ Saga
Já ég hvet þig til að búa til mynd af þér í huganum, mynd af stúlku sem er í fínu formi, ánægð með sig og full af söng. Þetta ert þú í hnotskurn á góðum tímum - alltaf. Þú ert greinilega að stíga skref í átt að þessari mynd. Hringdu í áköfu konuna (söngkennarann) bara til að heyra í henni, þú þarft ekki að taka tilboði hennar. Skrifaðu niður spurningar, hvað viltu vita fyrir utan verðið? Hvar í Róm hún er til húsa, hvaða bakgrunn hún hefur sem kennari, söngvari og performer! Líka að kanna hvort þú "fílir" hana þegar þú heyrir í henni. Svo segir þú henni að þú sért að kanna málið og hafir samband fljótt aftur þegar þú ert búin að ákveða þig. Skrifaðu Guggu aftur.
Hey! Njóttu lífsins og þá er ég ekki að tala um barina heldur menninguna og náttúruna. Það er jú hellingur af því þarna - þessi tími kemur ekki aftur og þú ert að búa til minningar sem þú nýtur alla ævi.
Ástarkveðja
Mamma sín

Anonymous said...

... og knús og kossar til þín.
Flóki bró

Anonymous said...

:* sakna þín. og ég held að sniglar séu ekki skriðdýr?:D.

kv. Harpa

Anonymous said...

haha nei veit ekki:D aldrei pælt í því. þeir skríða. en hérna já.. mér líkar í þér hljóðið og njóttu lífsins:* kv. Harpa aftur.

Anonymous said...

hæhæ saga.. frábærlega ordad"...Skólinn er bara eins og skólinn er." akkúrat eins og tad er ....hehe. Vona ad tér lídi mega vel og já eins gott ad vedrid sé ad batna hjá okkur fyrir sunnan íslenskuskerid......

Anonymous said...

hæhæ saga.. frábærlega ordad"...Skólinn er bara eins og skólinn er." akkúrat eins og tad er ....hehe. Vona ad tér lídi mega vel og já eins gott ad vedrid sé ad batna hjá okkur fyrir sunnan íslenskuskerid......

Anonymous said...

Getur þú valið að hafa minna þvottaefni, setja bara hálfan skammt?